Skip navigation

Þjónusta sem knýr fram raunverulegan vöxt

Kynntu þér þjónustu okkar sem er hönnuð til að skila raunverulegum, mælanlegum vexti með nýstárlegum miðlestrategíum og árangursdrifnum lausnum.

Vaxtarmarkaðssetning

Viltu verða stærri á netinu? Við nýtum nýstárlegar leiðir til að fanga athygli og áhuga markhópsins, og knýjum fram aukna sölu með hagkvæmum lausnum til vaxtar. Allt frá kostuðum birtingum á samfélagsmiðlum og leitarvélum, yfir í efnissköpun og stafræn almannatengsl – við erum með réttu stefnuna.

Markaðstæknilausnir (MarTech)

Sérfræðingar okkar í markaðstækni aðstoða stjórnendur við að byggja upp og þróa tæknilausnir sem leggja traustan grunn að vexti og velgengni fyrirtækisins. Þjónusta okkar spannar allt frá gagnavinnslu og viðskiptavinakerfum (CRM) yfir í nýjustu gervigreindarlausnir (GenAI). Heyrðu í okkur til að ræða markaðstækni.

Samfélagsmiðlar

Við byggjum upp og stýrum samfélagsmiðlalausnum til að hámarka árangur viðskiptavina okkar, allt frá verslun á TikTok og netverslun á Meta, yfir í öflun sölutækifæra á LinkedIn. Við náum til rétta fólksins, á réttum tíma, með réttu skilaboðin. Öflugt samstarf okkar við TBWA\Nordic veitir okkur algjöra sérstöðu á markaðnum.

Netverslun

Ástríða og sérþekking eru drifkrafturinn sem knýr netverslunarteymið okkar áfram til að stækka og efla reksturinn þinn, með aðferðum sem skila raunverulegum árangri. Sérfræðingar okkar vinna náið með vörumerkinu og tryggja ekki aðeins að markmiðum sé náð, heldur að farið sé fram úr þeim.

Gögn og mælingar

Við lifum á öld gagna. Aldrei hafa þau verið mikilvægari, en á sama tíma aldrei flóknari viðfangs. Við komum reglu á gagnaflæðið. Gæðastýring okkar felur í sér uppsetningu og sérsnið á mælaborðum sem leggja traustan grunn að gagnadrifinni ákvarðanatöku.

Stafræn almannatengsl og samskipti

Með víðtæka reynslu og djúpstæða þekkingu á algórithma að vopni hönnum við almannatengslastefnur sem auka sýnileika og bæta leitarstöðu. Hvort sem um ræðir langtímastefnu eða aukinn slagkraft fyrir einstakar herferðir, veitum við stuðning með markvissum stafrænum almannatengslum og samskiptum.

HubSpot

Við nýtum möguleika HubSpot til fulls með vottaðri sérþekkingu. Sem HubSpot Gold Solutions samstarfsaðili hjálpum við fyrirtækjum að straumlínulaga viðskiptavinakerfi (CRM), sjálfvirknivæða markaðsstarf og fínstilla söluferla til að knýja fram mælanlegan vöxt. Við tryggjum að HubSpot skili raunverulegum árangri, frá innleiðingu til bestunar.

360° þjónusta

Við mætum til leiks með réttu tólin og teymið til að mæta öllum þörfum varðandi mörkun, stefnumótun, framleiðslu og hönnun. Í nánu samstarfi við TBWA\Nordic höfum við á að skipa reynslumiklu hæfileikafólki þvert á allar víddir skapandi greina. Við tökum vel utan um vörumerkið.

SEO & GEO

Við bjóðum upp á hnitmiðaða leitarvéla- og gervigreindarbestun (SEO og GEO) sem stóreykur sýnileika, bæði hjá hefðbundnum leitarvélum og gervigreind. Markviss bestun tryggir að vefurinn birtist ekki aðeins ofarlega á Google, heldur fái einnig sterka stöðu í svörum gervigreindarlausna á borð við ChatGPT og Google Gemini. Þannig beinum við markvissri og verðmætri umferð inn á vefinn á skilvirkan hátt.

Ceedr Index

Greindu og berðu saman á hvað er efst í huga markhópsins (Top of Mind). Kynntu þér hvernig vörumerkið, varan eða tiltekið málefni stendur að vígi í samanburði við önnur.

Viltu sjá fyrirtækið þitt vaxa?