Samskipti við fjölmiðla og tenglasmíði
Með því að nýta okkar alþjóðlega tengslanet tengjum við vörumerkið þitt við helstu miðla og áhrifavalda til að tryggja gæðabirtingar og tengla (backlinks), sem eykur bæði sýnileika og vægi vörumerkisins.
Við höfum verið í fararbroddi í stafrænum almannatengslum og samskiptum í tæpa tvo áratugi. Með sterkar rætur í leitarvélabestun höfum við þróast yfir í að verða öflug á sviði almannatengsla sem þjónustar alla þætti samskipta. Með áratuga reynslu og djúpa þekkingu á algórithmum hönnum við almannatengslastefnu sem nær langt út fyrir hefðbundinn sýnileika.
Ferðalagið okkar hófst með efnisdrifinni tenglasmíði (link-building), þar sem við sköpuðum markvisst efni sem tengdi lesendur við viðskiptavini okkar og jók sýnileika og virkni. Þessi grunnur í leitarvélabestun (SEO) aðgreindi okkur strax í upphafi, en eftir því sem stafræna landslagið breyttist, þróuðumst við með því.
Í dag býður Ceedr upp á alhliða PR-þjónustu; að skapa sögu vörumerkja yfir í orðsporsstýringu og krísustjórnun. Við tryggjum að hver herferð sé nákvæmlega sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar og markaðar, hvort sem hún stendur ein og sér eða sem hluti af samstarfi okkar við TBWA á Norðurlöndunum.
Viðamikið tengslanet samstarfsaðila gerir okkur kleift að keyra verðlaunaðar PR-herferðir um allan heim og ná til fólks í ólíku umhverfi. Með reynslu úr fjölmörgum atvinnugreinum höfum við djúpan skilning á því hvernig á að takast á við menningarleg atriði jafnt sem atriði tengd tungumálum sem fylgja alþjóðlegum almannatengslum.
Ceedr sameinar stefnumótandi innsýn og skapandi framkvæmd til að skila marktækum árangri sem hefur hljómgrunn heima við en vex á alþjóðavísu.
Með því að nýta okkar alþjóðlega tengslanet tengjum við vörumerkið þitt við helstu miðla og áhrifavalda til að tryggja gæðabirtingar og tengla (backlinks), sem eykur bæði sýnileika og vægi vörumerkisins.
Verndaðu og efldu ímynd vörumerkisins. Við hjálpum þér að sigla í gegnum krísur, takast á við viðkvæm málefni og viðhalda trausti markhópsins með gagnsæjum og markvissum samskiptum.
Við sköpum grípandi frásagnir sem hafa hljómgrunn hjá markhópnum. Efnið okkar styrkir rödd vörumerkis á öllum miðlum; allt frá greinum sem byggja upp leiðandi markaðssýn (thought leadership) yfir í vinsælar herferðir á samfélagsmiðlum.
Aðlagaðu skilaboðin að alþjóðamörkuðum. Við aðlögum herferðir þínar svo þær fái hljómgrunn á ólíkum svæðum, án þess að fórna samræmi í ásýnd vörumerkisins.