Hvað er Ceedr Index?
Ceedr Index er tól sem gerir þér kleift að bera saman vörumerki, vörur, hugmyndir eða nýjustu strauma. Með því að greina leitarhegðun vörpum við ljósi á hvað fangar raunverulega athygli fólks. Hvort sem þú rekur fyrirtæki, starfar við markaðsmál eða rýnir í markaðsþróun, færðu hagnýta innsýn sem er sérsniðin að þinni leit.
Með því að nýta gögn úr Google Ads Keyword Planner vaktar Ceedr Index leit yfir tíma og mælir þannig hvað er efst í huga markhópsins („Top of Mind Awareness“ eða TOMA).
Til að gera niðurstöðurnar enn aðgengilegri tekur ChatGPT frá OpenAI saman hnitmiðaðar útskýringar. Þannig áttarðu þig fljótt á þróuninni án þess að þurfa að kafa ofan í flókin gögn. Samantektirnar setja hlutina í gagnlegt samhengi og gera gögnin mun nýtanlegri í starfi.