Skip navigation

Gögn og mælingar

Gögn eru ómissandi, en geta jafnframt verið flókin viðfangs. Við gæðastýrum gagnaflæðinu með sérsniðnum mælaborðum sem leggja grunn að upplýstari ákvarðanatöku. Sérsniðnar greiningarlausnir okkar spanna allt frá innsýn í netverslun yfir í öflun sölutækifæra í fyrirtækjaviðskiptum (B2B), ásamt mælaborðum fyrir samfélagsmiðlavöktun (e. social listening), almannatengsl og bestun á tækniinnviðum.

Heimasíða-1-1

Það sem við gerum

Gögn hafa aldrei verið mikilvægari … og flóknari. Við gæðastýrum gagnaflæðinu með uppsetningu á sérsniðnum mælaborðum sem veita skýra innsýn og styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku.

Rétt uppsetning á mælingum er algjört lykilatriði til að hægt sé að taka upplýstar og áhrifaríkar ákvarðanir. Lausnir okkar eru sérsniðnar að þörfum rekstrarins, hvort sem áherslan er á gögn úr netverslun, lykilhegðun á vef (e. micro-events) eða öflun sölutækifæra í fyrirtækjaviðskiptum (B2B). Við færum þér tólin sem þarf fyrir snjallari og gagnadrifnari stefnumótun.

Við smíðum og sérsníðum mælaborð sem þjóna réttum markmiðum og hámarka getuna til upplýstrar ákvarðanatöku; allt frá mælaborðum fyrir samfélagsmiðlavöktun og almannatengsl, yfir í skilvirka gagnavinnslu fyrir netverslanir og öfluga tækniinnviði fyrir B2B.

Hvernig við getum hjálpað

01

Sérsniðin mælaborð

Við smíðum sérsniðin mælaborð með kerfum á borð við Looker Studio, Power BI og Tableau. Þau veita rauntímainnsýn sem er aðlöguð að lykilmælikvörðum rekstrarins (KPI), hvort sem þarf að vakta viðskipti í netverslun, öflun sölutækifæra eða viðhorf til vörumerkisins.

02

Líkön fyrir rekjanleika (Attribution Models)

Við setjum upp líkön fyrir rekjanleika sem veita skýra innsýn í raunveruleg áhrif markaðsstarfsins. Með því að greina nákvæmlega hvaða miðlar skila bestum árangri gerum við þér kleift að hámarka arðsemina af markaðsfénu af fullu öryggi.

03

Lífrænn sýnileiki

Vaktaðu orðspor vörumerkisins og árangur herferða með sérhæfðum mælaborðum fyrir samfélagsmiðlavöktun og almannatengsl. Vertu skrefi á undan í umræðunni til að geta brugðist hratt við nýjustu straumum.

04

Samþætting gagna og sjálfvirkni

Straumlínulagaðu greiningarferlið með því að samtengja kerfi og sjálfvirknivæða skýrslugerð. Þannig skapast svigrúm til að einbeita sér að stefnumótandi ákvarðanatöku í stað handvirkrar gagnavinnslu.

Láttu gögnin vísa veginn

Mál