Vefgreiningar
Við nýtum kerfi á borð við GA4, HubSpot, Matomo og Supermetrics til að setja upp sérsniðin líkön fyrir rekjanleika (attribution models). Þannig verður algjörlega skýrt hvaðan árangurinn er raunverulega sprottinn.
MarTech-teymið okkar aðstoðar stjórnendur við að byggja upp og þróa tæknilausnir sem leggja traustan grunn að vexti og árangri. Þjónustan okkar spannar allt frá gagnavinnslu og viðskiptavinakerfum (CRM) yfir í nýjustu gervigreindarlausnir (GenAI).
Sérfræðingar okkar í MarTech hjálpa þér að velja og innleiða rétta tækni sem styður við vöxt og nær árangri. Við bjóðum upp á skýrar og áhrifaríkar lausnir, hvort sem markmiðið er betri gagnavinnsla, fínstilling á viðskiptavinakerfum (CRM) eða nýting á nýjustu gervigreindarlausnunum. Við vitum að markaðstækni getur virst flókin, en okkar hlutverk er að leiða stjórnendateymið í gegnum ferlið, skref fyrir skref. Hér má finna dæmi um þjónustu sem við bjóðum upp á.
Við nýtum kerfi á borð við GA4, HubSpot, Matomo og Supermetrics til að setja upp sérsniðin líkön fyrir rekjanleika (attribution models). Þannig verður algjörlega skýrt hvaðan árangurinn er raunverulega sprottinn.
Verkfæri eins og Hotjar og MS Clarity varpa ljósi á það hvernig viðskiptavinir nota vefinn og veita dýrmæta innsýn með hjálp hitakorta (heatmaps).
Með mælaborðum í Looker Studio, Databox eða Tableau fæst skýr yfirsýn yfir öll gögnin á einum og sama staðnum.
Við nýtum kerfi á borð við HubSpot, Salesforce, Klaviyo og Mailchimp til að straumlínulaga allt sölu- og markaðsstarf, allt frá utanumhaldi viðskiptavina til hnökralausrar samþættingar við söluferlið.
Hvernig spjallmenni gerði pólitískar upplýsingar aðgengilegri fyrir þingkosningarnar 2024
Ceedr og TBWA aðstoðuðu Metro Service í Danmörku við að ná ráðningarmarkmiðum á mettíma.
Með hnitmiðaðri ABM-stefnu og fókus á mjög þröngan markhóp náðum við 99% virkni og sköpuðum tugi sölutækifæra, sem sýnir svart á hvítu mátt markvissrar B2B markaðssetningar.
Fjórtánföldun tekna með því að breyta leitargögnum í raunverulegan árangur.