Skip navigation

HubSpot

HubSpot er meira en bara hugbúnaður. Það er drifkrafturinn bak við vöxtinn þinn. Sem HubSpot Gold Solutions Partner tengjum við saman stefnumótun, framkvæmd og sjálfvirkni til að efla markaðsstarf, sölu og þjónustuupplifun til muna. Hvort sem þú ert að innleiða HubSpot í fyrsta skipti eða vilt fínstilla núverandi kerfi, þá tryggjum við að allt vinni hnökralaust saman til að skila mælanlegum árangri.

Heimasíða-1-1

Það sem við gerum

Við einföldum flækjustigið í kringum HubSpot og sníðum kerfið að þínum þörfum. Við tryggjum að HubSpot sé rétt upp til að vaxa með þér, allt frá CRM-innleiðingu og sjálfvirkni í markaðsstarfi yfir í markvissa þjálfun. Þannig eyðir teymið þitt minni tíma í handavinnu og meiri tíma í að loka samningum.

Við beitum heildrænni nálgun þar sem við samstillum stefnu, gögn og tækni til að opna á ný tækifæri til vaxtar. Teymið okkar er klárt í að straumlínulaga ferlið og hámarka árangurinn, hvort sem þörf er á ítarlegum greiningum, sérsniðnum samtengingum eða fínstilltum HobSpot-vef.

Hvernig við getum hjálpað

01

Innleiðing á HubSpot CRM

Fáðu CRM-kerfi sem vinnur fyrir þig, en ekki öfugt. Við skipuleggjum og sérsníðum HubSpot að þínum rekstri, tryggjum hrein gögn og sjálfvirk vinnuflæði, auk þess sem við sjáum til þess að teymið kunni fyllilega á kerfið.

02

Sjálfvirkni í markaðsstarfi og ræktun sölutækifæra

Breyttu áhugasömum í viðskiptavini með snjallri, gagnadrifinni sjálfvirkni. Við byggjum upp hnökralaus kaupferli sem fanga athygli og skila auknum viðskiptum í stórum stíl.

03

Söluefling í Sales Hub

Við hjálpum þér að fínstilla Sales Hub í HubSpot til að auka skilvirkni og loka fleiri samningum á styttri tíma, allt frá sölupípu yfir í sjálfvirkni í söluferli.

04

Veflausnir og CMS

Vefurinn þinn ætti að vera öflugasti sölumaðurinn þinn. Við hönnum og smíðum HubSpot CMS vefi sem eru sérstaklega hannaðir til að skila mælanlegum árangri og hámarka viðskiptahlutfall (conversion).

Tölum um HubSpot

Verkefni