Skip navigation

Samfélagsmiðlar

Verslun á TikTok, netverslun á Meta, sölutækifæri á LinkedIn. Við byggjum upp og stýrum lausnum á samfélagsmiðlum til að hámarka árangur viðskiptavina okkar. Við náum til rétta fólksins, á réttum tíma, með réttu skilaboðin. Sterkt samstarf okkar við TBWA\Nordic gerir þjónustuframboð okkar einstakt.

Heimasíða-1-1

Það sem við gerum

Við höfum starfað við lífrænt og kostað efni á samfélagsmiðlum svo lengi að það liggur hreinlega í náttúru okkar að skila áhrifaríkum lausnum sem fanga athygli og skila árangri. Þjónusta okkar nær yfir miðla á borð við TikTok, Meta og LinkedIn, þar sem við nýtum eiginleika eins og TikTok Shopping, Meta e-commerce og LinkedIn Lead Gen til að skapa sérsniðnar herferðir.

Með því að vinna náið með hverjum miðli fyrir sig erum við alltaf með á nótunum og skrefi á undan þegar kemur að nýjustu straumum og tólum. Þannig tryggjum við að skilaboðin nái til rétta markhópsins á besta mögulega tíma. Samstarf okkar við TBWA\Nordic er einstök blanda þar sem við tengjum sérþekkingu okkar á samfélagsmiðlum við skapandi mátt TBWA.

Þetta kröftuga samstarf gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum heildarlausn; allt frá stefnumótandi efnissköpun yfir í hárnákvæma miðun og bestun. Saman bjóðum við upp á samfellda og öfluga nálgun sem hámarkar áhrif vörumerkisins í stafrænu landslagi.

Hvernig við getum hjálpað

01

Efnissköpun og stefnumótun

Við hönnum efni sem vekur ekki bara áhuga heldur skilar viðskiptum: Allt frá efni sem grípur augað strax yfir í sögur sem hafa hljómgrunn hjá tilteknum markhópum. Teymið okkar samstillir rödd vörumerkisins við kröfur hvers miðils fyrir sig til að tryggja hámarksárangur í hverri færslu.

02

Kostaðar herferðir

Hámarkaðu vöxtinn með gagnadrifnum birtingum. Hvort sem markmiðið er að auka sölu á TikTok, stækka hópinn á Meta eða safna sölutækifærum á LinkedIn, þá fínstillum við hverja krónu til að hámarka arðsemina.

03

Samfélagsstýring (Community management)

Við stýrum ekki bara samfélaginu þínu, við stækkum það. Með því að eiga í virku samtali við fylgjendur styrkjum við tryggð við vörumerkið og hvetjum til innihaldsríkra samskipta.

04

Sérþekking og nýsköpun

Samfélagsmiðlar eru í stöðugri þróun með nýjum uppfærslum og eiginleikum. Við erum alltaf með puttann á púlsinum og tryggjum að herferðirnar þínar nýti nýjustu tólin, s.s. gervigreindardrifna bestun og beina verslun í gegnum færslur.

Láttu röddina heyrast

Verkefni